Psalms 6

1Til söngstjórans. Með strengjaleik á áttstrengjað hljóðfæri. Davíðssálmur. 2Drottinn, refsa mér ekki í reiði þinni og tyfta mig ekki í gremi þinni. 3Líkna mér, Drottinn, því að ég örmagnast, lækna mig, Drottinn, því að bein mín tærast. 4Sál mín er óttaslegin, en þú, ó Drottinn _ hversu lengi? 5Snú þú aftur, Drottinn, frelsa sálu mína, hjálpa mér sakir elsku þinnar. 6Því að enginn minnist þín í dánarheimum, hver skyldi lofa þig hjá Helju? 7Ég er þreyttur af andvörpum mínum, ég lauga rekkju mína í tárum, læt hvílu mína flóa hverja nótt. 8Augu mín eru döpruð af harmi, orðin sljó sakir allra óvina minna. 9Farið frá mér, allir illgjörðamenn, því að Drottinn hefir heyrt grátraust mína. 10Drottinn hefir heyrt grátbeiðni mína, Drottinn tekur á móti bæn minni. [ (Psalms 6:11) Allir óvinir mínir skulu verða til skammar og skelfast mjög, hraða sér sneyptir burt. ]
Copyright information for Icelandic